Opel Ampera-e 100% rafmagn
Kynntu þér kjörin á einum magnaðasta rafbíl götunnar.
Opel Ampera-e er til afgreiðslu strax.


Pantaðu reynsluakstur
Hversu langt kemst þú?
áætluð drægni








* Niðurstöður reiknivélarinnar eru aðeins áætlanir. Þessar áætlanir byggja á niðurstöðum ökuprófa sem Opel hefur gert við misjafnar aðstæður (stuðst er við WLTP-stuðulinn). Fjölmargar breytur geta haft áhrif á drægni bílsins svo sem yfirborð vegar, veður, aksturslag og þyngd farms. Drægni frá degi til dags getur því verið önnur en sú sem reiknivélin gefur.
Opel Ampera-e
100% rafmagnsbíll
Opel Ampera-e er 100% rafmagnsbíll sem heldur ekki aftur af þér. Hann fer allt að 500 km á einni hleðslu (423 km samkvæmt WLPT-staðli), er rúmgóður og þægilegur og uppfyllir allar kröfur sem nútímafólk gerir til bílanna sinna. Umhverfisvænni kostur sem kemur þér alla leið.
Verð frá 4.590.000 kr.
Hlaðinn búnaði
Margmiðlunarkerfi með 10,2" snertiskjá.
8" stafrænn litaskjár í mælaborði.
Bakkmyndavél með 360° sjónarhorni.
Þráðlaus hleðsla fyrir snjallsíma.
6 hátalarar.
7,2 kW hleðslukapall.
Fjárstýring hljómtækja og hraðastilling í stýri. Hægt að gangsetja og forhita með fjarstýringu.
Öflug rafhlaða
60 kWh rafhlaða.
150 kW vél, 204 hestöfl.
0–100 km á 7,3 sekúndum.
150 km drægni eftir aðeins 30 mín. hleðslu í hraðhleðslustöð.
10 km drægni eftir aðeins 30 mín. í heimahleðslustöð.
ÁBYRGÐ
8 ára ábyrgð eða 160.000 km, hvort sem kemur á undan, er á háspennuíhlutum í nýjum Opel Ampera-e.
SÍSTÆKKANDI NET HLEÐSLUSTÖÐVA FYRIR ALMENNING
Það hefur aldrei verið auðveldara og hraðvirkara að hlaða Opel Ampera-e þegar þú ert á ferðinni. Nú þegar geturðu nýtt þér fjölda allan af hraðhleðslustöðvum og öflugum hleðslustöðvum um land allt. Sífellt er verið að bæta við fleiri hleðslustöðvum fyrir almenning.
Hér fyrir neðan má sjá hleðslustöðvakort
Vertu velkomin(n) í reynsluakstur, söluráðgjafar okkar taka vel á móti þér.
Bílabúð Benna Reykjavík
Krókhálsi 9
Sími: 590 2000
Bílabúð Benna Reykjanesbæ
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330